Persónuverndarstefna
Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er Ferðaráð ehf kt. 511022-1930. Persónuupplýsingarnar eiga við um þá þjónustu sem fyrirtækið veitir viðskiptavinum sínum, heimasíður þess og netverslun á vefslóðinni lystiferdir.is. Öll samskipti á heimasíðu fyrirtækisins fara í gegnum SSL dulkóðun. Hægt er að senda fyrirspurn um meðferð persónuupplýsinga fyrirtækisins á inga@lystiferdir.is
Persónuupplýsingar og meðhöndlun þeirra
Við vinnum með ákveðnar persónuupplýsingar sem þú sem viðskiptavinur veitir okkur, en upplýsingarnar notum við til þess að geta veitt þér sem besta þjónustu. Við höldum ekki utan um upplýsingarnar lengur en nauðsynlegt er en okkur ber t.d. að geyma upplýsingar um vörukaup og greiðslur í minnst 7 ár samkvæmt lögum um bókhald.
Samkvæmt lögum um persónuvernd nr. 90/2018 hefur þú rétt til að óska eftir afriti af persónuupplýsingunum þínum, leiðrétta þær eða afturkalla
Tengiliðir
Við þurfum að halda utan um kennitöluna þína, nafnið þitt, heimilisfang, netfang og símanúmer til þess að geta:
- Gert löglega reikninga fyrir vöru eða þjónustukaupum
- Haft samband við þig vegna þjónustu eða vörukaupa þinna
- Sent þér auglýsingar og tilboð ef þú hefur skráð þig á póstlista. (Þér stendur alltaf til boða að afskrá þig af póstlista)
Við látum þriðja aðila þessar upplýsingar aldrei í té nema í þeim tilvikum sem það er nauðsynlegt vegna t.d. sendinga/flutninga á vörum.
Tæknilegar upplýsingar
Þegar þú heimsækir vefsíðu okkar þá er ákveðnum gögnum safnað sjálfkrafa. Þessi gögn innihalda upplýsingar eins og t.d. upplýsingar um IP tölu, netvafra, tölvukerfi og fl. Upplýsingar eru einnig skráðar um það hvernig þú tengdist vefsíðunni (í gegnum hlekk), frá hvaða vefsíðu þú tengist, tíma og lengd heimsóknar þinnar, hvaða síður þú skoðar og hvaða vörur eða þjónustu þú keyptir ef það á við. Þessar upplýsingar eru mögulega skráðar með notkun þinni á vafrakökum (cookies). Nánari upplýsingar um vafrakökur.
Aðrar upplýsingar
Við vinnum með ópersónugreinanlegar upplýsingar eins og tölfræðiupplýsingar. Þær er ekki hægt að rekja til þín sem viðskiptavinar en þetta eru t.d. upplýsingar um fjölda pantana, heimsóknir á vefsíðu, notkun afslátta og fl.