Fyrsta sigling Royal Princess í júní 2013 markaði nýja tíma í siglingum skemmtiferðaskipa.
Það fyrsta sem maður tekur eftir um borð í Royal Princess er hið risastóra miðsvæði “hjarta” skipsins. Það er þrjár hæðir og tengt saman með glerliftum og marmaralögðum stigum. Í miðsvæðinu er móttaka skipsins, veitingastaðir, verslanir, barir og margt sem vert er að skoða.
Frábær skemmtiatriði
Það er nóg að gera um borð og fjölbreytt afþreying í boði
- Pricess leikhúsið býður upp á söngleiki og skemmtanir tvisvar á dag
- Princess Live er sjónvarpssalur þar sem ýmislegt er í boði eins og matreiðsluþættir, viðtalsþættir, skemmtiþættir og leikjaþættir margskonar.
- Vista lounge er skemmtistaður helgaður kvöldskemmtunum þar sem ýmislegt skemmtilegt er í boði
- Bellini´s er ítalskur kokteil bar og á Crooner´s Lounge & Bar getur þú valið um 75 mismundani tegundir af Martini. The Wheelhouse Bar býður síðan upp á lifandi píanótónleika og drykki.
Afslöppun og þægindi
Fyrir þá sem vilja slappa af og slaka á býður Royal Princess upp á margt eins og t.d. nutt, aromameðferðir, slakandi böð og spa.
Afslöppun í klefanum þínum
Klefinn þinn er líka hannaður þannig að þú getir hvílt þig og slakað á. Hann er búinn snjallsjónvarpi, peningaskáp og minibar svo fátt eitt sé upptalið. Hægt er að velja um klefa inn í skip, venjulega og deluxe svalaklefa og mini svítur og svítur.
Royal Princess í hnotskurn:
- Fjöldi veitingastaða
- Hægt að fá mat hvenær sem er sólarhringsins
- Sérréttar veitingastaðir
- Hlaðborðsstaður
- Pítsa og hamborgarastaður
- Líkamsræktarsalur
- Spa
- Hlaupabraut
- Körfuboltavöllur
- Minigolf
- Borðtennis
- Bókasafn
- Fríhafnarverslun
- Leikhús
- Útibíó
- Sjónvarpssalur
- Spilavíti
- Næturklúbbur
- Kokteil og vindlabarir
- The Sanctuary-Sólbaðs-slökunarsvæði aðeins fyrir fullorðna.
- Sjósett: 2013
- Þyngd: 141.000 tonn
- Lengd: 330 metrar
- Breidd: 36 metrar
- Hæð: 66 metrar
- Þilför: 19
- farþegafjöldi: 3.560
- Fjöldi í áhöfn: 1.346
- Klefafjöldi: 1.780
- Fleir en 1.000 svalaklefar
- sundlaugar: 3